5.9.2008 | 14:57
Er ekki nóg komið í bili af göngum fyrir örfáa..........
Kominn tími til að taka til hendinni hér á höfuðborgarsvæðinu. Því miður eru þingmenn okkar hér liðónýtir í að sinna umbjóðendum sínum. Hvað haldið þið að það kosti að hafa tugþúsundir manna fasta í umferðaröngþveiti tvisvar á dag hvern einasta vinnudag. Vinnutapið, eldsneytiskostnaðinn og svo maður tali nú ekki um skerðinguna á lífsgæðum sem felst í því að byrja hvern vinnudag með rönguna út og eyða öllum þessum tíma í bílaröð. Vill ekki heyra neitt röfl um að nota strætó - það gerir hvort sem er enginn, eða eins og einn vinur minn sagði: "Þið getið notað strætó, en ég ætla að keyra sjálfur". Til að byrja með legg ég til að allir vöru- og malarflutningar verði bannaðir milli 7:30 - 9:00 á morgnana og svo frá 16:00 til 18:00 seinni partinn. Það yrðu fyrstu skref til að laga til í umferðarmálum okkar. Svo þarf að fækka innkomum og ljósum á Sæbrautinni og fleiri stofnbrautum. Það er náttúrulega bara brandari að aka um þær. Það er ekkert lögmál að stysta leiðin út á stofnbraut skuli valin, heldur mætti frekar safna umferðinni í færri innkomur á þessar stofnbrautir og fækka þar með ljósum og greiða þannig fyrir stofnbrautaumferðinni.
Jarðgöng undir Dynjandisheiði myndi kosta 14 milljarða | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Viðskipti og fjármál | Facebook
Um bloggið
Theo
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.